27.08.10
Fimmtudaginn 3. sept. og 4. sept. kl. 20, verður sýning á vegum LÓKAL, alþjóðaleg leiklistahátíð í Reykjavík sem fjallar um ættleiðingar, sjá lýsingu hér að neðan. Hægt er að panta miða á:
This e-mail address is being protected from spambots, you need JavaScript enabled to view it
og í síma: 898 3412.
Hún hafði ekkert í höndunum til að byrja með, annað en þær dularfullu upplýsingar sem ættleiðingarstofan veitti henni og voru svohljóðandi: „Þú fannst í Suður Kóreu árið 1977, í pappakassa og vafin inn í dagblöð.“ En Miriam Yung Min Stein ákvað að hrækja í lítið tilraunaglas frá fyrirtækinu 23andMe, taka stroku innan úr munnholinu með „genom-collector“ frá fyrirtækinu DeCODEme og bíða niðurstöðu úr genaprófum beggja aðila. Annað fyrirtækjanna birtir niðurstöðurnar á heimasíðu sinni undir yfirskriftinni „welcome to you“. „Uppdráttur“ líkamans, getur hann verið ævisaga manns? Hvernig segir maður sögu sína, ef hún hefst ekki fyrr en á þýskum flugvelli, líkt og í tilviki Miriam Stein?